Undirsíðukubbur

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Klukkan

Innskráningar kubbur

Undirsíðukubbur

ljótt blogg!!!

13. mars 2007 klukkan 09:41
ég er auli ever... ég er svo ekki að fatta neinar útlitsstillingar á þessu bloggi hérna :S þarf að finna mér einhvern expert í svona :D kallinn er tölvunörd en hann er alveg lokuð bók á svona bloggsíður :S en aldrei að vita hvað er hægt að fá hann til að gera :D
annars gengur danskinn minn bara ágætlega, missti 3.7 kg á fyrstu 3 vikunum :D bara ágætt og í þessu var svindl, djúsí kökuafmæli og allskonar :D
allt gott að frétta hérna, maður er reyndar að verða langeyg eftir páskafríinu :D en þá er ætlunin að skella sér norður á akureyri og kíkja á tengdafjölskylduna :D wish me luck!!!! og sonurinn með væntanlega :D það verður hasar :D
fyrsti sálfræðingstíminn útaf greiningarferli sonarins er búinn og gekk vel og næst á dagskrá í lok mars er að hann er að fara í þroskapróf með tilheyrandi og þegar það kemur útúr því þá kemur í ljós hvað framhaldið verður svona sirka :D
skólinn gengur ágætlega bara :D er að fá einkannir svona á bilinu 7.5-9.5 :D mun betra en það sem ég hafði áður norður á Krók, þar var bara heppni að ná :D núna er mar aðeins kröfuharðari á sjálfa sig :D vantar samt smá skipulagni í líf mitt en það er eitthvað sem ég veit ekki hvað er :D en ég veit vel hvað kæruleysi er :D
svo er næsta mál á dagskrá hjá mér að koma einhverju útliti á þetta blogg, ferlega leiðinlegt hvernig það lítur út :D alger illi tilli....
jæja bið að heilsa bara í bili :D þarf að fara að læra :O

ps. Gunnur, þú mátt alveg adda mér inná msnið þitt ef u notar svoleiðis apparat :D hestapika_82@hotmail.com :D

sí jú leitör alígeitör :D
Lilja Björnsdóttir

:D

19. febrúar 2007 klukkan 20:33
jæja mín að blogga annann daginn í röð, allt að gerast Ullandi hef ekki verið duglegast bloggarinn hingað til :O skil ekkert í því :D
annars gekk dagurinn fínt hjá mér matarlega séð :D held ég hafi farið eftir öllu :D hálf erfitt samt að vikta allt og mæla og reyna að púsla öllu saman... en þetta kemur örugglega allt bara með kalda vatninu... sem minnir mig á það, vaskurinn minn er eilífðarstíflaður!!! ég hata það :S næ stíflunni úr, eftir tvo daga allt fast aftur!!! ég hef ekki efni á pípara og verð bara pirr á þessu :P
strákurinn minn var veikur í dag og ég var heima þess vegna... sé frammá að vera heima á morgunn líka, amk var smá hitavella í gangi áðann áður en honum var hent í rúmið :( það er vettvangsferð í skólanum á morgunn og mín er hálf skúff yfir að komast ekki... hver vill passa :D
en þá fæ ég bara aukadag í að pæla í öllu þessu matardæmi :D ég er lélegur  kokkur og er hrædd við allar nýjungar :D ein sem þarf að þroskast!!! mikla það mikið fyrir mér :P
er ekki alveg að þora í viktun í vikunni, hef reynt að standa mig en náttla var helgin í tómu sukki eiginlega og ég hef alltaf verið hærdd við viktoríur :D enda sjaldan verið vinkonur mínar en ég er að reyna að ráða bót á því :D
annars er lítið að segja, er að spá í að láta kærastann lána mér þrekhjólið sitt sem er fatastandur heima hjá honum :D hver kannast nú ekki við það??? get þá notað það yfir sjónvarpinu þegar ég kemst ekki út að labba... sem er ekkert of oft, er mikið ein með þann stutta...
jæja, ætla að fara að pæla í morgundeginum, hvernig ég eigi að púsla honum saman :D
knús í bili....
Lilja Björnsdóttir

allt í klepr

18. febrúar 2007 klukkan 21:02
ákvað að byrja á danska kúrnum. samt einn galli, eldamennska!!!! ég hata að elda!! ég er versti kokkur í heiminum :(  fór á fund hjá þeim á þriðjudeginum og bara nokk ánægð með það :D miðvikudagur, fimmtudagur og föstudagur fór vel. fór svo noður til gömlu og það fór ekki vel :S en fyrsta vikan er tilraun og svona og mar getur ekki verið fullkomin :D búin að setja niður morgundaginn samt :D og mun það bara fara vel :D búin að ákveða það :D meira að segja að fara að tilraunast með uppskriftir aðeins :P bolludagurinn hinn eini sanni sko :D get ekki hugsað mér að sleppa honum enda er ég alger bolla og gæti verið bolludagur hjá mér á hverjum degi af útlitinu að dæma :D flissss....
kemur í ljós svo hvernig það fer :D en ég skal :D
ég hef verið rosalega flakkandi í því hvernig skuli taka á mínum feitabollumálum en ég ætla að prófa þetta og vonandi að það bara geri eitthvað fyrir mig... fyrsta vikan er tilraun og sjá hvernig ég fíla þetta... og enn sem komið er er ég sátt. enda ekkert til neitt slikkerí á mínu heimili annað en hjá foreldrum mínum :D datt líka feitt í það flissss... en át samt vel af grænmeti með!!! afsökun já ég veit :D
svo ætla ég á morgunn að skrifa takmörkin mín og svona :D en já, ég semsagt er að taka áskorun að blogga um þetta rugl mitt í mér :D
kv.
Lilja Björnsdóttir

fyrsti í bloggi :P

15. janúar 2007 klukkan 19:21
jæja, þá er tilraun númer billjón til að fara að blogga :D ég er vön að byrja og standa mig í smá tíma og svo bara hættir mín... ekki alveg að gera sig beint...
en þetta blogg verður ekki svona hefðbundið blogg, ákvað útaf því að fara ekki aftur af stað á gamla svæðinu mínu heldur stofna nýtt því þetta á að vera heilsubloggið mitt :P
gerði það fyrir tvemur árum að blogga um átak sem ég var í og kynntist ég þar mörgum góðum konum, ég fékk stuðning, ráð og gat lesið hjá öðrum :D rosalega gottttt...þannig að það sakar ekki að prófa allaveganna...
fyrir tvemur árum fór ég á herbalife og það var eitthvað rosalega að gera sig og ég léttist um eitthvað um 25 kg á því :D hætti svo og fékk ógeð... þyngdist ekkert mikið aftur :D svo í haust fór ég í gsa og var þar í rúma tvo mánuði en kolféll svo, var full einhæft fyrir mig, komin með ógeð á matnum útaf því hvað það var einhæft og svo var þetta svo mikil binding þetta fyrirkomulag.
núna er ég farin af stað aftur eina ferðina enn, ætla að reyna að losa mig við sirka 15 kíló :D ætti þá að verða komin í kjörþyngd að mestu og sátt við mig :D á líkama og sál.
ég ætla að reyna að gera þetta uppá eigin spýtur, borða hollt og gott, borða ekki mikið og borða rétt :D gangi mér vel en ég ætla samt að reyna... held að þetta sé nú best að reyna að gera þetta svona uppá framtíðina að gera :D svo er ég farin að sprikla í WorldClass í laugum og kann ágætlega við mig þar, helst að það er ekkert rosalega ég að vera að hlaupa eins og bavíani á einhverju bretti en ég læt mig samt hafa það :D ég skal, ég get og ég vil :D
er svo heppin þannig séð að vera með fólk í kringum mig sem er að taka sig á líka og fæ ég smá back up frá þeim :D Kallinn er að taka sig á svoldið og reyna að hlöllast í ræktina, bara svo rosa langur skóladagur hjá honum og lærdómur að stundum verður það að sitja á hakanum að fara og sprikla, bætum það bara upp með heimaleikfiminni... hehehe... svo er vinkona mín sem var með mér í átakinu í denn og hún er að æfa á sama stað og ég og við reynum stundum að fara saman :D erum með sömu áherslurnar, reyna að gera þetta sjálfar og allt það :D og svo er ein önnur sem er smá stuðningsbolti hjá mér :D
jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.... bara svona smá um þetta hérna hjá mér :D skrifa svo kannski síðar í dag eða kveld smá kynningu á mér og svona :P
knús í bili...
Lilja Björnsdóttir